HiRISE tekur myndir af halastjörnunni ISON

Comet ISON Captured by HiRISE

enska spænska portúgalska ítalska gríska rúsneska
Þann 29. september 2013 beindi Mars Reconnaissance Orbiter geimfarið High Resolution Imaging Science Experiment (HiRISE) myndavélinni að ISON, halastjörnu sem fór framhjá Mars á leið sinni inni í sólkerfið.

HiIRSE sá lítinn en tiltölulega bjartan punkt, ekki ósvipaðan stjörnu, þar sem ISON var staðsett, sem færðist miðað við fastastjörnurnar. Hjúpur halastjörnunnar er greinilega mjög daufur svo gögnin setja skorður á stærð kjarna halastjörnunnar og heildarbirtu hennar. Slíkar mælingar eru mikilvægar til að skilja hegðun halastjörnunnar og fyrir aðra athugendur.

Þessi mynd sýnir 256 x 256 pixla blett á himninum eða sem samsvarar 12,8 milljónir kílómetra breitt svæði, þegar inngeislunarhorn sólar var 47 gráður. Þrjár aðrar athuganir á ISON eru fyrirhugaðar dagana 1. og 2. október þegar halastjarnan kemst næst Mars, þá í 11,3 milljón km fjarlægð, en þá verða birtuskilyrðin ekki eins góð séð frá Mars.

Frumathuganir á gögnunum benda til að halastjarnan sé daufari en spár höfðu gert ráð fyrir. Fyrir vikið er myndin ekki eins mikið fyrir augað en lítil virkni í kjarnanum er heppileg til að setja mörk á stærð kjarnans. Hver myndeining samsvarar um það bil 13,3 km sem er stærra en halastjarnan en hægt er að áætla stærð kjarnans út frá birtu annarra halastjörnukjarna. Halastjarnan er, rétt eins og Mars, í 241 milljón kílómetra fjarlægð frá sólinni. Þegar halastjarnan færist nær sólu eykst birta hennar og gæti hún orðið talsvert bjartari þegar meira sólarljós bræðir ísinn í henni.

Halastjarnan ISON (formlega þekkt sem C/2012 S1) er talin á sínu fyrsta ferðalagi inn í innra sólkerfið frá Oortsskýinu, kúlulaga safni halastjarna og fyrirbæra sem líkjast halastjörnum í allt að eins ljósárs fjarlægð frá sólu. Þann 28. nóvember næstkomandi fer halastjarnan framhjá sólu í 1,16 milljón km fjarlægð frá henni. Þeir Vitali Nevski og Artyom Novichonok við International Scientific Optical Network (ISON) nærri Kislovdsk í Rússlandi fundu halastjörnuna þann 21. september 2012 þegar hún var stödd milli Júpíters og Satúrnusar.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason

Image: NASA/JPL/University of Arizona