Ares 3 og Marsbúinn
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Ares 3 og Marsbúinn
ESP_026086_2115
Enska   Franska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Í skáldsögunni „Marsbúinn“ eftir Andy Weir ver strandaði geimfarinn Mark Watney tíma sínum að mestu á „Ares 3“ svæðinu á suðurhluta Acidalia Planitia. Í bókinni er Acidalia lýst sem flötum og greiðfærum stað — geimfarinn ekur meira að segja að lendingarstað Pathfinder og til baka.

Í raun er svæðið mun fjölbreyttara, áhugaverðara og hættulegra en gefið er til kynna í skáldsögunni. Myndin sem hér sést var tekin skammt frá Ares 3 lendingarsvæðinu eins og það birtist á kápu skáldsögunnar. Á myndinni sjást fjölmargir hólar sem gætu verið gervigígar sem mynduðust við víxlverkun hrauns og vatns, eða leirset.

Ótal hnullungar, allt að nokkurra metra háir og því ógreiðfærir, þekja stóran hluta Acidalia Planitia. Svæðið er sprungið vegna risavaxinna melatigla og hlíðarnar eru brattar, grýttar og ófærar. Á staðnum er þéttur gígahópur í mjög grófgerðu landslagi. Þegar hetja okkar ekur yfir á Arabia Terra er landslaginu þar lýst sem grýttara en Acidalia, á meðan sú er ekki raunin: Stór hluti Arabia er rykugur og sléttur staður sem jeppinn gæti hæglega ekið um.

Almennt gera flestir ráð fyrir því að svæði sem eru slétt á stórum skala (kílómetrar) séu líka slétt á minni kvarða (frá metrum upp í tugi metra). Á Mars er hið gagnstæða oftast raunin: Stór flöt svæði eru gjarnan vindsorfnari því fína rykið fýkur burt og leiðir í ljós grófgerðara berg og berggrunninn.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Dagsetning myndatöku:
19 febrúar 2012

Staðartími á Mars:
2:59 PM

Breiddargráða (miðjuð):
31°

Lengdargráða (austur):
331°

Fjarlægð til yfirborðs:
294 km

Kvarði upprunalegu myndarinnar:
frá 29 cm/díl (með 1 x 1 dílaknipping) til 58.7 cm/díl (með 2 x 2 dílaknipping)

Kvarði kortavörpunar:
25 cm/díl

Kortavörpun:
Equirectangular (og norður snýr upp)

Útgeislunarhorn:


Fasahorn:
40°

Inngeislunarhorn sólar:
40°, þar sem sólin var um 50° yfir sjóndeildarhring

Sóllengd:
72°

JPEG
Gráskali
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB litur:
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB blandað:
Kortavörpun

RGB blandað:
Kortavörpun

RGB litur:
Án Kortavörpunar

JP2 (NIÐURHAL)
Gráskali:
Kortavörpun (916 MB)

IRB litur:
Kortavörpun (585 MB)

JP2 EXTRA
Gráskali:
Kortavörpun  (470 MB),
Án kortavörpunar  (348 MB)

IRB litur:
Kortavörpun  (235 MB)
Án kortavörpunar  (488 MB)

IRB blandað:
Kortavörpun  (277 MB)

RGB blandað:
Kortavörpun  (269 MB)

RGB litur:
Án kortavörpunar  (501 MB)
Aukaupplýsingar um mynd
Lýsigögn gráskala
Lýsigögn litmynda
Lýsigögn blandaðs IRB
Lýsigögn blandaðs RGB
EDR myndir

Myndir
Hægt er að draga alla myndahlekki yfir í HiView eða smella á þá til að sækja

Notkun á myndum
Allar ljósmyndir frá HiRISE sem aðgengilegar eru á þessari síðu, eru í almannaeigu og njóta því ekki höfundarverndar: Engin takmörk eru sett á notkun þeirra, hvorki meðal almennings, fjölmiðla eða vísindastofnana. Við óskum aðeins eftir að myndhöfunda sé getið, ef mögulegt er:
Mynd: NASA/JPL-Caltech/UArizona

Eftirskrift
Jet Propulsion Laboratory NASA, deild innan California Institute of Technology í Pasadena í Kaliforníu, hefur umsjón með stýringu Mars Reconnaissance Orbiter fyrir hönd NASA Science Mission Directorate í Washington. HiRISE myndavélin var smíðuð hjá Ball Aerospace and Technology Corporation en er starfrækt af University of Arizona.