Hnullungamynstur
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Hnullungamynstur
ESP_076499_1160
Enska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2736
2880
4500
4K
8K
10K


Á þessari mynd sést botn á gíg mjög sunnarlega á Mars. Á henni sjást margir hnullungar sem eru frá 1 til 10 metrar á breidd. Hnullungarnir dreifast ekki handahófskennt eða samfellt, heldur oft línulega eða í hringlaga mynstri.

Sum þessar mynstra líkjast frosttiglum sem gjarnan sjást á háum breiddargráðum á Mars. Þeir myndast þegar ís við yfirborðið þenst út og dregst saman á víxl. Með árunum gæti þetta ferli hafa hreyft hnullunga til og raðað þeim upp á mörk tiglanna. Sé raunin sú, eru eldri frosttiglar ekki lengir sýnilegir á svæðinu þótt mynstrin sem hnullungarnir raða sér í séu enn til staðar.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Dagsetning myndatöku:
21 nóvember 2022

Staðartími á Mars:
2:43 PM

Breiddargráða (miðjuð):
-64°

Lengdargráða (austur):
22°

Fjarlægð til yfirborðs:
251 km

Kvarði upprunalegu myndarinnar:
50 cm/díl (með 2 x 2 dílaknipping) svo ~151 cm breiðir hlutir sjást

Kvarði kortavörpunar:
50 cm/díl

Kortavörpun:
Equirectangular (og norður snýr upp)

Útgeislunarhorn:


Fasahorn:
63°

Inngeislunarhorn sólar:
63°, þar sem sólin var um 27° yfir sjóndeildarhring

Sóllengd:
342°

JPEG
Gráskali
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB litur:
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB blandað:
Kortavörpun

RGB blandað:
Kortavörpun

RGB litur:
Án Kortavörpunar

JP2 (NIÐURHAL)
Gráskali:
Kortavörpun (383 MB)

IRB litur:
Kortavörpun (215 MB)

JP2 EXTRA
Gráskali:
Kortavörpun  (167 MB),
Án kortavörpunar  (226 MB)

IRB litur:
Kortavörpun  (85 MB)
Án kortavörpunar  (220 MB)

IRB blandað:
Kortavörpun  (393 MB)

RGB blandað:
Kortavörpun  (367 MB)

RGB litur:
Án kortavörpunar  (210 MB)
Aukaupplýsingar um mynd
Lýsigögn gráskala
Lýsigögn litmynda
Lýsigögn blandaðs IRB
Lýsigögn blandaðs RGB
EDR myndir

Myndir
Hægt er að draga alla myndahlekki yfir í HiView eða smella á þá til að sækja

Notkun á myndum
Allar ljósmyndir frá HiRISE sem aðgengilegar eru á þessari síðu, eru í almannaeigu og njóta því ekki höfundarverndar: Engin takmörk eru sett á notkun þeirra, hvorki meðal almennings, fjölmiðla eða vísindastofnana. Við óskum aðeins eftir að myndhöfunda sé getið, ef mögulegt er:
Mynd: NASA/JPL-Caltech/UArizona

Eftirskrift
Jet Propulsion Laboratory NASA, deild innan California Institute of Technology í Pasadena í Kaliforníu, hefur umsjón með stýringu Mars Reconnaissance Orbiter fyrir hönd NASA Science Mission Directorate í Washington. HiRISE myndavélin var smíðuð hjá Ball Aerospace and Technology Corporation en er starfrækt af University of Arizona.