Hrímuð giljadrög
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Hrímuð giljadrög
ESP_037137_1360
Enska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Vöktun HiRISE hefur sýnt að giljadrög á Mars myndast einkum á veturna og snemma á vorin, á þeim árstímum og á þeim stöðum þar sem frost er í jörðu.

Myndin sem hér sést var tekin síðla vetrar, svo hrím eða ís (hvítu svæðin) eru aðeins á þeim hlíðum sem snúa í suður og hafa notið lítillar sem engrar sólarbirtu hingað til.

Hryggirnir milli hvilfta giljadraganna fá meira sólarljós og virka rauðleit og að mestu hrímlaus. Ný giljadragavirkni er ekki augljós á myndinni. Hugsanlega ríkir mjög viðkvæmt jafnvægi: Sum árin, en ekki öll, hrindir hrímið (allt að 1 metra þykkt um það bil) af stað skriðuföllum. Hrímið er að mestu úr koldíoxíði (þurrís) en inniheldur líka lítið magn af vatnsís.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason

 
Invalid parameter for observation_ID: