Á þessari ljósmynd HiRISE sést dalur fullur af alls kyns línulegum hryggjum. Hryggir af þessu tagi eru oft kallaðir þverlægir fokhryggir (e. transverse aeolian ridges eða TAR) og koma í ýmsum formum. Hér liggja þeir hornrétt á dalinn vegna þess hvernig landslagið beinir vindi meðfram lægðinni.
Á þessum slóðum hafa aðrar myndanir orðið til á sumum þverlægu fokhryggjunum, sennilega litlar gárur. Algenger að sandöldur séu þaktar litlum gárum en stefna þeirra getur verið mismunandi vegna vinda sem blása í mismunandi áttir vegna stærri sandalda. Hér eru seinni myndanirnar með óvenju geislótt og samátta mynstur
svo þverlægu fokhryggirnir minna á fjaðrir í útliti.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason