Opportunity jeppinn á Valentínusardegi árið 2014
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Opportunity jeppinn á Valentínusardegi árið 2014
ESP_035408_1775
Enska   Franska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Hér sést nýjasta mynd HiRISE af Opportunity jeppanum á Solander Point, þar sem hann varði nokkrum vikum við könnun á Pinnacle steininum (hinum svonefnda „jelly donut“) sem hjól jeppans hafði snúið við.

Við skipulögðum þessa myndatöku þegar „nýi“ steinninn sást fyrst, en ein tilgátan var sú að hann hefði losnað við nýlegan árekstur. Við sjáum engin augljós merki um nýlega gíga á myndinni en nákvæmari samanburður á henni og eldri myndum gæti leitt í ljós minniháttar breytingar (fyrir utan staðsetningu jeppans).

Vindur (á botni Endeavour gígsins eru virkar sandöldur) er líklegasti breytingavaldurinn á þessu svæði á Mars þótt nýir árekstrar geti orðið hvar sem er.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason

 
Dagsetning myndatöku:
14 febrúar 2014

Staðartími á Mars:
3:25 PM

Breiddargráða (miðjuð):
-2°

Lengdargráða (austur):
355°

Fjarlægð til yfirborðs:
285 km

Kvarði upprunalegu myndarinnar:
28 cm/díl (með 1 x 1 dílaknipping) svo ~85 cm breiðir hlutir sjást

Kvarði kortavörpunar:
25 cm/díl

Kortavörpun:
Equirectangular (og norður snýr upp)

Útgeislunarhorn:
20°

Fasahorn:
43°

Inngeislunarhorn sólar:
57°, þar sem sólin var um 33° yfir sjóndeildarhring

Sóllengd:
90°

JPEG
Gráskali
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB litur:
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB blandað:
Kortavörpun

RGB blandað:
Kortavörpun

RGB litur:
Án Kortavörpunar

JP2 (NIÐURHAL)
Gráskali:
Kortavörpun (1073 MB)

IRB litur:
Kortavörpun (601 MB)

JP2 EXTRA
Gráskali:
Kortavörpun  (533 MB),
Án kortavörpunar  (525 MB)

IRB litur:
Kortavörpun  (205 MB)
Án kortavörpunar  (452 MB)

IRB blandað:
Kortavörpun  (266 MB)

RGB blandað:
Kortavörpun  (269 MB)

RGB litur:
Án kortavörpunar  (428 MB)
Þrívíddarmyndir
Kortavörpun (PNG)
JP2 (niðurhal)

Aukaupplýsingar um mynd
Lýsigögn gráskala
Lýsigögn litmynda
Lýsigögn blandaðs IRB
Lýsigögn blandaðs RGB
EDR myndir

Myndir
Hægt er að draga alla myndahlekki yfir í HiView eða smella á þá til að sækja

Notkun á myndum
Allar ljósmyndir frá HiRISE sem aðgengilegar eru á þessari síðu, eru í almannaeigu og njóta því ekki höfundarverndar: Engin takmörk eru sett á notkun þeirra, hvorki meðal almennings, fjölmiðla eða vísindastofnana. Við óskum aðeins eftir að myndhöfunda sé getið, ef mögulegt er:
Mynd: NASA/JPL-Caltech/UArizona

Eftirskrift
Jet Propulsion Laboratory NASA, deild innan California Institute of Technology í Pasadena í Kaliforníu, hefur umsjón með stýringu Mars Reconnaissance Orbiter fyrir hönd NASA Science Mission Directorate í Washington. HiRISE myndavélin var smíðuð hjá Ball Aerospace and Technology Corporation en er starfrækt af University of Arizona.