Endurteknar hlíðarrákir (recurring slope linea, eða RSL) má hugsanlega rekja til fljótandi vatns. Þessar dökku rákir eru margar meðfram bröttum hlíðum gamals berggrunns í Coprates Chasma.
Endurteknar hlíðarrákir eru mest áberandi á ljósleitu keilunum neðst á berggrunninum en teygja sig aftur inn í berggrunninn meðfram litlum farvegum. MRO fylgist áfram með lykilstöðum til að skilja þetta fyrirbæri betur, sem og önnur jarðfræðleg ferli á Mars.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason