Hryggirnir sem hér sjást eru taldir ævafornir árfarvegir, en vindrof hefur mótað upphleypt landslag. Það sem áður var botn árfarveganna stóð betur af sér rof og liggur nú tiltölulega hátt.
Á nærmyndinni sjáum við hvar áin hefur brotið sér leið þvert á bugðu, þ.e. hún hefur sveigt sífellt meira uns hún „stytti sér leið“. Farvegurinn sem eftir sat myndaði bjúgvatn á meðan vatn var til staðar. Árfarvegakerfi eins og þessir myndast hægt og rólega með tímanum, ólíkt farvegum hamfaraflóða sem sjást annars staðar á Mars.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason