Á myndinni sjást landmyndanir sem virðast hafa myndað „v-laga“ mynstur í hlíðum Coloe Fossae. Athyglisvert er að önnur landform í sömu hlíð liggja öll samsíða.
Hvernig verða þessar myndanir til? Eru þau setform sem vindurinn hefur mótað? Hvers vegna eru þessar myndanir í sumum hlíðum en ekki öðrum?
Neðar á myndinni sjáum
við sprungið landslag sem má líklegast rekja til jöklunar. Mikill munur er á efri hlíðunum og viðkvæmu gáruðu landmyndununum í dalbotninum.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason