Tvær kynslóðir af vindbornu seti
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Tvær kynslóðir af vindbornu seti
ESP_033262_1725
Enska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880
4K
8K
10K

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Þetta litríka svæði er að finna í Noctis Labyrinthus, hátt á Þarsis bungunni á efri svæðum Valles Marineris gljúfrakerfisins.

Sjónum var beint að ljósleitu hnúðunum á brúnum berggrunnsins, en á myndinni sést líka víxlverkun tveggja ólíkra gerða af vindbornu seti. Í kringum berggrunnshnúðana er kerfi ljósrauðra hryggja með flókna samtengda formgerð. Þessir ljósu hryggir líkjast „þverlægum fokhryggjum“ (e. transverse aeolian ridges eða TARs) sem eru algengir á miðbaugssvæðum Mars.

Lítið er vitað um þverlæga fokhryggi en myndun þeirra er oftast eignuð sköflum sem myndast við breytilegar vindáttir, skafla með grófa kornastærð eða harðnað rykset. Athuganir HiRISE á þverlægum fokhryggjum hingað til hafa sýnt, að þessar setmyndanir eru stöðugar á löngum tímaskölum sem bendir til að þær myndist hægt yfir langan tíma, mun lengri en endingartíma MRO leiðangursins, eða að þær hafi myndast í fortíðinni við allt aðrar loftslagsaðstæður en í dag.

Dökkar sandöldur samanstanda af annars konar vindbornu seti en því sem sést á myndinni. Dökku sandöldurnar rétt fyrir neðan gíginn á úrklippunni bera einkenni sem eru algeng í virkum sandöldum sem HiRISE hefur komið auga á annars staðar á Mars, þar á meðal hópa lítilla sandgára þvers og kruss ofan á öldunni. Í mörgum tilvikum er það færsla þessara litlu gára sem knýja framrás sandalda á Mars. Dökku öldurnar eru úr ögnum járnríkra steinda úr eldfjallabergi á Mars, ólíkt ljósu, kvarsríku sandöldunum á Jörðinni.

Á myndinni sést dökkur sandur ofan á ljósu kerfi þverlægra fokhryggja, en það bendir til þess að sandöldurnar séu yngri en fokhryggirnir. Ferskt útlit sandaldanna bendir ennfremur til þess, að þær séu virkar í dag og hjálpa eflaust til við að móta óvenjulega formgerð fokhryggjanna með því að sandblása þá.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Dagsetning myndatöku:
31 ágúst 2013

Staðartími á Mars:
2:33 PM

Breiddargráða (miðjuð):
-7°

Lengdargráða (austur):
264°

Fjarlægð til yfirborðs:
263 km

Kvarði upprunalegu myndarinnar:
26 cm/díl (með 1 x 1 dílaknipping) svo ~79 cm breiðir hlutir sjást

Kvarði kortavörpunar:
25 cm/díl

Kortavörpun:
Equirectangular (og norður snýr upp)

Útgeislunarhorn:
10°

Fasahorn:
32°

Inngeislunarhorn sólar:
41°, þar sem sólin var um 49° yfir sjóndeildarhring

Sóllengd:
15°

JPEG
Gráskali
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB litur:
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB blandað:
Kortavörpun

RGB blandað:
Kortavörpun

RGB litur:
Án Kortavörpunar

JP2 (NIÐURHAL)
Gráskali:
Kortavörpun (589 MB)

IRB litur:
Kortavörpun (343 MB)

JP2 EXTRA
Gráskali:
Kortavörpun  (267 MB),
Án kortavörpunar  (267 MB)

IRB litur:
Kortavörpun  (67 MB)
Án kortavörpunar  (276 MB)

IRB blandað:
Kortavörpun  (142 MB)

RGB blandað:
Kortavörpun  (135 MB)

RGB litur:
Án kortavörpunar  (269 MB)
Þrívíddarmyndir
Kortavörpun (PNG)
JP2 (niðurhal)

Aukaupplýsingar um mynd
Lýsigögn gráskala
Lýsigögn litmynda
Lýsigögn blandaðs IRB
Lýsigögn blandaðs RGB
EDR myndir

Myndir
Hægt er að draga alla myndahlekki yfir í HiView eða smella á þá til að sækja

Notkun á myndum
Allar ljósmyndir frá HiRISE sem aðgengilegar eru á þessari síðu, eru í almannaeigu og njóta því ekki höfundarverndar: Engin takmörk eru sett á notkun þeirra, hvorki meðal almennings, fjölmiðla eða vísindastofnana. Við óskum aðeins eftir að myndhöfunda sé getið, ef mögulegt er:
Mynd: NASA/JPL-Caltech/UArizona

Eftirskrift
Jet Propulsion Laboratory NASA, deild innan California Institute of Technology í Pasadena í Kaliforníu, hefur umsjón með stýringu Mars Reconnaissance Orbiter fyrir hönd NASA Science Mission Directorate í Washington. HiRISE myndavélin var smíðuð hjá Ball Aerospace and Technology Corporation en er starfrækt af University of Arizona.