Hæð í setlagabunkanum við suðurpól Mars
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Hæð í setlagabunkanum við suðurpól Mars
ESP_032020_0955
Enska   Franska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Setlagabunkinn við suðurpól Mars er þykkur ís- og rykstafli sem myndast hefur á mörgum milljónum ára. Setmyndunarhraðinn breytist með tímanum og stundum verður rof í staflanum á sumum stöðum.

Hér sést lítill stapi eða hæðahringur við brún setlagabunkans. Líklega var hér eitt sinn árekstragígur. Gígbotninn veitti viðnám og var skilinn eftir þegar rof hélt áfram á restinni af yfirborðinu.

Myndir á borð við þessa geta sýnt okkur hvar rof á sér stað í setlögunum og hversu mikill ís og hve mikið ryk hefur glatast. Það hjálpar okkur aftur að recorded in the layersskilja söguna sem skráð er í lögin.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Dagsetning myndatöku:
26 maí 2013

Staðartími á Mars:
4:23 PM

Breiddargráða (miðjuð):
-84°

Lengdargráða (austur):
12°

Fjarlægð til yfirborðs:
249 km

Kvarði upprunalegu myndarinnar:
50 cm/díl (með 2 x 2 dílaknipping) svo ~150 cm breiðir hlutir sjást

Kvarði kortavörpunar:
50 cm/díl

Kortavörpun:
þrívíð pólvörpun

Útgeislunarhorn:


Fasahorn:
70°

Inngeislunarhorn sólar:
74°, þar sem sólin var um 16° yfir sjóndeildarhring

Sóllengd:
325°

JPEG
Gráskali
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB litur:
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB blandað:
Kortavörpun

RGB blandað:
Kortavörpun

RGB litur:
Án Kortavörpunar

JP2 (NIÐURHAL)
Gráskali:
Kortavörpun (105 MB)

IRB litur:
Kortavörpun (58 MB)

JP2 EXTRA
Gráskali:
Kortavörpun  (49 MB),
Án kortavörpunar  (71 MB)

IRB litur:
Kortavörpun  (20 MB)
Án kortavörpunar  (67 MB)

IRB blandað:
Kortavörpun  (107 MB)

RGB blandað:
Kortavörpun  (101 MB)

RGB litur:
Án kortavörpunar  (63 MB)
Þrívíddarmyndir
Kortavörpun (PNG)
JP2 (niðurhal)

Aukaupplýsingar um mynd
Lýsigögn gráskala
Lýsigögn litmynda
Lýsigögn blandaðs IRB
Lýsigögn blandaðs RGB
EDR myndir

Myndir
Hægt er að draga alla myndahlekki yfir í HiView eða smella á þá til að sækja

Notkun á myndum
Allar ljósmyndir frá HiRISE sem aðgengilegar eru á þessari síðu, eru í almannaeigu og njóta því ekki höfundarverndar: Engin takmörk eru sett á notkun þeirra, hvorki meðal almennings, fjölmiðla eða vísindastofnana. Við óskum aðeins eftir að myndhöfunda sé getið, ef mögulegt er:
Mynd: NASA/JPL-Caltech/UArizona

Eftirskrift
Jet Propulsion Laboratory NASA, deild innan California Institute of Technology í Pasadena í Kaliforníu, hefur umsjón með stýringu Mars Reconnaissance Orbiter fyrir hönd NASA Science Mission Directorate í Washington. HiRISE myndavélin var smíðuð hjá Ball Aerospace and Technology Corporation en er starfrækt af University of Arizona.