Einn vandasamasti hluti geimferða er að finna örugga en vísindalega áhuga lendingarstaði. Með HiRISE og þá miklu upplausn sem myndavélin hefur, geta aðrir leiðangurshópar óskað eftir því, að myndir séu teknar af hugsanlegum lendingarstöðum á Mars.
Í þessu tilviki var mynd tekin fyrir hinn fyrirhugaða InSight leiðangur NASA. Svæðið sem hér sést er einn af mögulegum lendingarstöðum geimfarsins en því er ætlað að kafa djúpt undir yfirborð Mars í leit að merkjum um þau ferli sem mótuðu bergreikistjörnurnar. InSight hópurinn þarf að finna flatt svæði sem einnig mætir markmiðum leiðangursins.
HiRISE hefur reynst notadrjúg fyrir aðra Mars-leiðangra. Við höfum tekið aragrúa mynda af mögulegum lendingarstöðum annarra leiðangra, eins og Phoenix lendingarfarið og Curiosity jeppann sem nú kannar innviði Gale gígsins.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason