Árstíðabundið rof
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Árstíðabundið rof
ESP_029545_0950
Enska   Franska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Ljóst koldíoxíðhrím (eða þurrís) setur sterkan svip á þessa farvegi sem sorfnir eru í yfirborðið. Á vorin, þegar árstíðabundna pólhettan sem er úr þurrís gufar upp (þurrgufar, þ.e. fer beint úr föstu formi í gas), verður örlítið rof í farvegunum á lagmótum íssins og yfirborðsins. Rofið verður undir árstíðabundna íslaginu: Þegar gas undir ísnum losnar burt, ber það með sér laust yfirborðsefni. Yfirborðsefnið berst með vindinum, sest svo niður á yfirborðið og myndar dökkar keilur ofan á árstíðabundna laginu.

Gasið undir ísnum berst alltaf út þar sem fyrirstaðan er minnst. Á þessu svæði barst gasið í gegnum melatíglana á yfirborðinu. Melatiglar eru algengir á háum breiddargráðum og myndast við útþenslu og samdrátt vatnsís í yfirborðinu.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Invalid parameter for observation_ID: