Á þessari mynd er athyglinni beint að óvenju mörgum gígóttum keilum sem fundust á myndum Mars Orbiter Camera. Þetta gætu hugsanlega verið leirhveragígar. Svona gígar eru algengir t.d. í Gobustan-héraði í Azerbajan og við Kaspíahafið.
Séu þetta leirhveragígar, þá vaknar sú spurning hvaða ferli í jarðskorpu Mars gæti hafa myndað þá?
Með þeirri upplausn sem næst með HiRISE myndavélinni er hægt að skoða fíngert munstur rennslis og bera saman við gíga á öðrum stöðum á Mars.